Góða kvöldið
ég komst í jólagjafarverslunarfíling í gær...amms keypti 4 gjafir
duglega ég, snilld að byrja svona snemma að þessu.. mun hafa litinn tíma í desember til að versla gjafir! Þá verður mín komin í móðurhlutverkið..sem mér finnst ennþá vera óraunverulegt.. finnst bara að ég muni vakna upp af þessum draumi..en engin draumur
it´s happening
Tók eftir því áðan að ég er komin með soldið af fötum á dömuna...en sama sem ekkert newborn föt...enda fæ ég hjá Bryndísi svona pínulítil föt
hlakka til að fara skoða þau
Svo eru breytingar á heimilinu... herbergið mitt að fyllast af dóti.. það var verið að rífa úr skápana hjá m&p og nýjir skápar að koma þangað sem og parket og ég flyt svo yfir í þeirra herbergi
veit að vísu ekki hvenær það verður..
Þau eru svo að fara enn eina ferðina til Portúgal núna 9.okt og í 2 vikur.. ljúft að vera ein heima en ætli Vigga sys verði ekki eitthvað heima líka..Mams er allavega búin að nefna það við hana. Vigga: þú mátt endilega flytja til mín á meðan
leiðist þér ekki annars að borða ein
Og ég ætla svo að fara í fríið langa núna um mánaðarmótin...eða það var planið.. verð kannski eitthvað smá lengur í vinnunni.. erum nebbla 4 að fara í frí um mánaðarmótin..en ég verð lengst í fríi, hinar bara í nokkra daga eða svo!
Ég fékk mér neglur um daginn, í fyrsta skipti! og vá hvað þær voru fyrir mér til að byrja með en ég er búin að venjast þeim og búin að brjóta 2.. soddan brussa hér á ferð
Man ekki eftir neinu meira í fréttum...
Hafið það annars bara gott